Fyrir okkur öll, saman áfram

Jafnræði
image of an inspiring natural landscape (for a film production company)
Samvinna og ábyrgð
image of the organization in action
Ný nálgun
image of commuter train station
Í skipulagi og náttúru

Grímsnes & Grafningshreppur – Jafnræði, samvinna og sjálfbær framtíð. Kynntu þér áherslur okkar og hafðu samband til að taka þátt.

Áherslur fyrir öflugt samfélag

Við leggjum áherslu á jafnræði, samvinnu, ábyrga stjórnun, skýra stefnumótun og sjálfbæra nýtingu náttúru. Markmiðið er betri þjónusta, gagnsæi og velferð allra íbúa.

image of networking event (for a hr tech)
Tilkynningar

Heilbrigt Samfélag

Feb 17.02 - 2026

Framboðið Betri sveit hefur frá upphafi lagt áherslu á að ræða málin af yfirvegun og ábyrgð. Við gerðum okkur grein fyrir því að þegar við myndum benda á það óréttlæti sem þeir íbúar hafa orðið fyrir sem eru skráðir ótilgreindir í húsum, gæti það kallað fram gagnrýni – jafnvel persónulegar árásir á frambjóðendur okkar. Við vorum undir það búin.
Það sem við vorum hins vegar ekki undirbúin fyrir er það umfang og sá tónn sem nú birtist í umræðunni – fálmkennt skítkast og ásakanir sem koma úr sveitarfélaginu. Slík framganga þjónar hvorki málefninu né samfélaginu sem við öll erum hluti af.
Markmið Betri sveitar er einfalt og skýrt: að benda á kerfisbundið misrétti sem hefur viðgengist og hefur bitnað á ákveðnum hópi íbúa, og kalla eftir sanngirni, jafnræði og mannlegri reisn fyrir alla. Við höfum ekki ráðist að neinum persónulega; við höfum gagnrýnt verklag og ákvarðanir sem hafa haft raunveruleg áhrif á líf fólks.
Við viljum að í sveitinni ríki sátt og samlyndi. Við viljum samfélag þar sem allir íbúar sitja við sama borð, njóta sömu réttinda og eru metnir að verðleikum – óháð stöðu, tengslum eða búsetuskráningu.Er það of mikið að fara fram á? Okkar mat er að það sé lágmarks krafa í hverju réttlátu og heilbrigðu samfélagi.

Við viljum heyra frá þér. Sendu okkur fyrirspurn eða athugasemd og við svörum eins fljótt og auðið er.

Ertu með spurningu?

Hafðu samband núna

Takk fyrir að hafa samband!
image of fundraising event
Eitthvað fór úrskeiðis við innsendingu.